Jón Jósefsson

ID: 11852
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1916

Jón Jósefsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1851. Dáinn í Ballard í Washingtonríki 26. nóvember, 1916.

Maki: Ingibjörg Arngrímsdóttir f. í N. Múlasýslu árið 1865. Anderson vestra, systir Ólafs Guðjóns Arngrímssonar í Minneota..

Börn: 1. Jósefína f. 1883 2. Arngrímur Þorsteinn f. 14. september, 1884 3. Marvin Ólafur f. desember, 1888 4. Metúsalem (Matthew) f. c. 1889 5. Emil Ferdinand f. 14. maí, 1892 6. Salína Sigurbjörg f. 17. júní, 1894 7. Philip f. 1900

Jón flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og var þar einhvern tíma. Flutti þaðan til Wisconsin og seinna til Minnesota. Ingibjörg fór vestur til Minnesota með systkinum sínum árið 1879. Þar hófu hún og Jón búskap í Lyon sýslu og bjuggu á landi sínu til ársins 1898 en þá fluttu þau vestur til Ballard í Washington.