ID: 11856
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1919
Bergvin Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 24. október, 1852. Dáin í Marietta í Washington 15. október, 1919. Hoff vestra.
Maki: Sæunn Jónsdóttir f. 12. júlí, 1842 í Eyjafjarðarsýslu, d. í Marietta 14. júlí, 1925.
Barnlaus en ættleiddu tvö: 1. Kolbeinn d. 1920 2. Þórdís.
Bergvin flutti vestur til Minnesota árið 1879 með föður sínum. Þeir settust að í Lyon sýslu. Sæunn fór vestur árið 1883. Þau hófu búskap í Lyon sýslu en um aldamótin fluttu þau vestur að Kyrrahafi og settust að í Marietta í Washington.
