ID: 11861
Fæðingarár : 1897
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Sigurður Þorsteinsson fæddist 5. febrúar, 1897 í Vopnafirði í N. Múlasýslu.
Maki: Guðrún Þorsteinsdóttir f. í S. Múlasýslu árið 1913.
Börn: Þau áttu sex börn, upplýsingar um þau vantar.
Sigurður fór vestur árið 1902 með foreldrum sínum, Þorsteini Þorsteinssyni og Vilborgu Jónsdóttur. Þau fóru til Manitoba, þaðan í Vatnabyggð í Saskatchewan og loks á Red Deer Point í Manitoba árið 1915. Guðrún fór vestur ársgömul með foreldrum sínum, Þorsteini Vigfússyni og Kristínu Jónsdóttur. Þau fóru í Argylebyggð í Manitoba. Sigurður var eftirlitsmaður Kanadastjórnar um fiskveiðar í Norður Manitoba.
