Einar S Jónsson

ID: 11870
Fæðingarár : 1888

Einar Sigurður Jónsson fæddist í Vopnafirði í N. Múlasýslu 16. desember, 1888. Hrappsted vestra.

Maki: 23. júlí 1913 Ólína Martha Sveinsdóttir f. 23. apríl, 1891 í Churchbridge, Saskatchewan.

Börn: 1. Lawrence Jóhannes f. 27. apríl, 1914 2. Marinó f. 17. júlí, 1915 3. Margaret Guðfinna f. 19. júní, 1917 4. Carl f. 25. desember, 1918.

Einar flutti vestur árið 1893 með foreldrum sínum Jóni Jóhannessyni og Margréti Jónsdóttur. Hún lést af barnsförum í skipi á leiðinni yfir Atlantshaf. Einar og Ottó, bróðir hans, fylgdu föður sínum vestur til Manitoba sem nam land í Argylebyggð.  Þaðan lá leiðin 1899 í Álftárdal nærri Swan River í Manitoba. Einar flutti þaðan árið 1910 og settist að í Vatnabyggð, nærri Elfros. Þar var hann bóndi eftir það. Ólæina var dóttir Sveins Halldórssonar og Guðfinnu Kristínu Eiríksdóttur, sem vestur fluttu til Kanada árið 1887.