ID: 11898
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1919
Hjálmar Arngrímsson fæddist í N. Múlasýslu 30. september, 1855. Dáinn í Washington ríki 17. maí, 1919. Anderson í Minnesota, Vopni í Washington.
Maki: Hólmfríður Jónasdóttir f. að Krossi í S. Þingeyjarsýslu árið 1857.
Börn: 1. Arnljótur (Arlo) f. 23. janúar, 1885 2. Sara/Svava (Carol) f. 1887 3. Hulda f. 1890, d. 1894 í seattle 4. Egill f. 7. mars, 1895 5. Hilda f. 1897.
Hjálmar flutti vestur til Kanada árið 1876 og bjó þar á ýmsum stöðum en settist svo að í Lincoln sýslu í Minnesota. Þar kvæntist hann og bjó til ársins 1892 en þá flutti fjölskyldan vestur að Kyrrahafi. Í manntali í Seattle árið 1910 er hann skráður Vopni og vann sem mjólkurpóstur.
