Oddur Guttormsson

ID: 11990
Fæðingarár : 1878
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Oddur Guttormsson Mynd VÍÆ I

Oddur Guttormsson fæddist í Vopnafirði, N. Múlasýslu 1. október, 1878.

Maki: 27. desember, 1912 Guðný Hermína Hermannsdóttir f. í Selkirk 7. maí, 1895.

Börn: 1. Hermann Guttormur f. 4. október, 1913 2. Snólaug Björg f. 2. ágúst, 1916 3. Agnes Guðlaug f. 31. mars, 1923 4. Þórður Axel f. 2. desember, 1924 5. Jóhann Magnús f. 25. desember, 1926 6. Anna Stefanía f. 12. október, 1929 7. Irene Diane f. 17. júní, 1937 8. Lulu Ingibjörg f. 17. júní, 1937.

Oddur flutti til Vesturheims árið 1893 með foreldrum sínum, Guttormi Þorsteinssyni og Birgittu Jósefsdóttur og systkinum. Þau settust að í Manitoba þar sem Oddur gerðist bóndi í Húsavík við Winnipegvatn. Þar stundaði hann líka fiskveiðar. Guðný var dóttir Hermanns Guðmundssonar og Guðrúnar Snjólaugu Jónsdóttur sem bjuggu á Winnipeg Beach.