Guðlaug Guttormsdóttir

ID: 11994
Fæðingarár : 1887

Guðlaug Guttormsdóttir fæddist í Vopnafirði, N. Múlasýslu 23. september, 1887. Arason vestra.

Maki: 21. desember, 1918 Skafti Benediktsson f. 22. mars, 1888, d. 16. júlí, 1950 í Nýja Íslandi.

Börn: 1. Jón f. 2. mars, 1920 2. Sigurveig f. 5. september, 1924 3. Ragnhildur f. 12. apríl, 1928.

Guðlaug var dóttir Guttorms Þorsteinssonar og Birgittu Maríu Jósefsdóttur, sem vestur fluttu árið 1893 með átta börn. Þau bjuggu á Gimli fyrstu þrjú árin en svo keypti Guttormur Húsavík í Víðinesbyggð. Guðlaug lauk kennaraprófi í Winnipeg og kenndi í Víðinesbyggð í sex ár. Þaðan lá leið hennar til Langruth og seinna í Arborg. Hún og Skafti bjuggu í Húsavík þar sem Skafti sá um póstþjónustu ein 33 ár.