Kristinn Kristinsson

ID: 12040
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Kristinn Kristinnsson Mynd Almanak 1912

Kristinn Kristinsson fæddist í N. Múlasýslu 26. maí, árið 1851. Dáinn í Markerville í Alberta 11. febrúar, 1826.

Maki: 1882 Sigurlaug Einara Guðmundsdóttir f. 19. nóvember, 1860 í Skagafjarðarsýslu, d. í Innisfail í Alberta 28. desember, 1936.

Börn: 1. Stefán Kristinn Ólafur f. 5. maí, 1883, 17. nóvember, 1905 2.  Guðbjörg Lilja f. í Mountain í N. Dakota 28. mars, 1884 d. 24. febrúar, 1923 3. Hannes Frost f. í N. Dakota 9. september, 1885, d. 7. september, 1962 4. fósturdóttir Hólmfríður Eleanor Ólafsdóttir f. í Calgary í Alberta 2. apríl, 1897, d. 6 október, 1966.

Kristinn fór vestur til  Ameríku árið 1873 og kom til Philadelphia í Bandaríkjunum 29. mai. Hélt þaðan áfram vestur til Milwaukee í Wisconsin en ári seinna er hann sestur að í íslensku nýlendunni í Shawanosýslu í Wisconsin. Flutti vestur til N. Dakota árið 1879 og nam land í Garðarbyggð. Þar hófu þau hjón búskap en fluttu svo þaðan vestur í Markervillebyggð í Alberta árið 1889. Sigurlaug, systir Stephans G. Stephanssonar flutti vestur með foreldrum sínum og bróður árið 1873. Kristinn og Sigurlaug fóru ekki vestur með sama skipi.