Guðbjörg Daníelsdóttir

ID: 12085
Fæðingarár : 1831
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Guðbjörg Daníelsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 20. maí, 1831.

Maki: 9. september, 1853 Gísli Benjamínsson f. 10. mars, 1829 in N. Múlasýsla, d. 20. janúar, 1916.

Börn Gísla fyrir hjónaband. Bæði fóru vestur: 1. Gísli f. 20.júlí, 1851. Dáinn 7.mars, 1874. 2. Guðný f. 14. september, 1852. Saman eignuðust þau 10 börn en aðeins eitt lifði og fór með þeim vestur. Sigbjörn (skrifaði sig Benson vestra) f. 8.janúar, 1868.

Fluttu vestur árið 1876 og fóru til Nýja Íslands. Þau tóku land í Hnausabyggð og nefndu Aðalból. Þar bjuggu þau í þrjú ár en fluttu þaðan til Winnipeg þar sem þau bjuggu önnur þrjú ár. Þaðan lá leiðin til N. Dakota 1882 og settust þau að í svonefndum Pembinafjöllum. Þar bjuggu þau í 25 ár.