Guðmundur Ólafsson

ID: 12101
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1954

 Guðmundur Ólafsson fæddist í N. Múlasýslu 3. apríl, 1873, d. í Golden í Bresku Kólumbíu 30. desember, 1954.

Maki: Amelia f. í Minnesota af norskum ættum.

Börn: 1. Bertha f. 1904 2. Clarence f. 1908 3. Norman f. 1909 4. Raymond f. 1914 5. Helga f. 1916 6. Janette f. 1922 7. Duane f. 1924.

Guðmundur flutti vestur til Kanada árið 1879 með foreldrum sínum Ólafi Rafnssyni og Ragnhildi Þorvarðardóttur úr N. Múlasýslu. Þau fóru til Winnipeg. Guðmundur varð trésmiður og vann víða, bæði í Vestur Kanada og Bandaríkjunum.