Jósefína Sigurðardóttir

ID: 12123
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1891

Jósefína Sigurðardóttir fæddist í N. Múlasýslu 1853. Dáin 3. desember, 1891 í Minnesota.

Maki: Guðmundur Jónsson f. 4. maí, 1855 á Refsstað í N. Múlasýslu, d. 11. september, 1920 í Minneapolis. Tók föðurnafnið Rafnson vestra.

Börn: 1. Sigurjón f. 26. júlí, 1885 2. Þórunn Ingibjörg f. 30. nóvember, 1889 í Marshall.

Guðmundur og Jósefína fluttu vestur árið 1889 og settust að í Marshall í Minnesota. Guðmundur flutti þaðan eftir að Jósefína lést og settist að í Minneota.