ID: 12166
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Vilhjálmur Grímsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1856.
Ókvæntu og barnlaus.
Vilhjálmur og faðir hans, Grímur Snjólfsson fluttu saman vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893. Þar tók Gísli, bróðir Vilhjálms, á móti þeim en hann hafði flutt vestur 1888. Stefán Ólafsson, vinur Gísla, hafði opnað mjólkurbúð á Toronto stræti og átti fáeinar kýr sem Gísli annaðist. Nýkomnir feðgar bjuggu hjá Gísla en fljótlega fékk Vilhjálmur starf hjá borginni.
