Elísabet Hallgrímsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1856.
Maki: Jón Valdimar Jónsson f. 1853 í N. Múlasýslu. Dáinn árið 1893.
Börn: 1. Guðrún Halldóra f. 24. júní, 1892. Málfríður f. 1877 og Jórunn f. 1881 voru dætur Jóns af fyrra hjónabandi. Móðir þeirra var Halldóra Jónsdóttir sem lést árið 1882.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og voru þar í tvö ár. Með þeim fór Jórunn Jónsdóttir, móðir Jóns og vinnukonan Kristbjörg Jónsdóttir. Þaðan lá leiðin í Álftavatnsbyggð í Manitoba árið 1889 þar sem þau bjuggu í fjögur ár. Þar dó Jón. Elísabet flutti með fólkið sitt til Minnesota árið 1893 og bjó í Minneotabyggð til ársins 1906. Þá flytur hún með dóttur sína Guðrúnu Halldóru til Winnipeg og þar bjuggu þær í tvö ár. Hún nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1908 og flutti á það ári síðar. Bjó sín síðustu ár hjá Guðrúnu Halldóru og hennar manni, Páli Bjarnasyni í Wynyard.
