Halli Björnsson fæddist 15. nóvember, 1869 í N. Múlasýslu. Dáinn í Lyon sýslu í Minnesota 3. apríl, 1968
Maki: 14. júlí, 1897 Ingibjörg Jónsdóttir f. 1873 í S. Múlasýslu, d. 16. maí, 1956.
Börn: 1. Björn Melvin f. 20. júní, 1898 2. Karólína Jónína f. 17. nóvember, 1899 3. George Lincoln f. 28. mars, 1901 4. Harold Sigfinnur f. 3. desember, 1904, d. 1906 5. Harold Arngrímur f. 6. nóvember, 1906 6. Joseph Sigurður f. 25. nóvember, 1908 7. Dorothy f. 9. febrúar, 1911 8. Eugene Howard f. 7. júlí, 1914
Halli flutti vestur árið 1878 með móður sinni, Sigurbjörgu Sigurðardóttur og hennar manni, Sigfinni Péturssyni. Þau settust að í Minnesota. Árið 1900 keypti Halli land í Lyon sýslu og hóf þar búskap. Ingibjörg fór vestur með sínum foreldrum, Jóni Arngrímssyni og Þórunni Sigurðardóttur árið 1877.
