Rannveig Árnadóttir

ID: 12280
Fæðingarár : 1881
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Rannveig Stefanía Árnadóttir fæddist í N. Múlasýslu 1881

Maki: 21. mars, 1912 Jónas Tómasson f. 1884 í Eyjafjarðarsýslu.

Börn: 1. Árni Kristján f. 1. september, 1912 2. Ragnar f. 13. september, 1915 3. Þórdís Sigurbjörg f. 11. mars, 1918 4. Guðrún Sigurrós f. 9. ágúst, 1920.

Rannveig fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Árna Sigurðssyni og Kristjönu S. Stefánsdóttur árið 1892. Jónas fór vestur til N. Dakota með foreldrum sínum og systkinum árið 1888. Hann ólst upp í Garðarbyggð en flutti þaðan með foreldrum sínum í Brown byggðina í Manitoba. Þaðan lá leið hans í Vatnabyggð í Saskatchewan vorið 1904. Hann nam land nærri Mozart.