ID: 12316
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1948
Valdimar Gíslason fæddist 3. september, 1867 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Saskatchewan 26. október, 1948.
Maki: 1891 Guðríður Teitsdóttir f. 1. janúar, 1867 í Húnavatnssýslu, d. 12. febrúar, 1935.
Börn: 1. Valdimar Gísli 2. Guðrún Kristín d. 1968 3. Kristján Carl 4. Gunnlaugur f. 14. maí, 1899 5. Kristbjörg Emily f. 29. september, 1901 6. Elís Gunnar.
Valdimar fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og nam land í Pembinabyggð, suðvestur af Pembina þorpi í N. Dakota. Þau fluttu norður í Vallarbyggð í Saskatchewan um 1903 og námu þar land. Þau færðu sig um set um 1920 og keyptu land norður af Wynyard í Vatnabyggð.
