Gísli Grímsson

ID: 12334
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1936

Gísli Grímsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1854. Dáinn í Lundarbyggð árið 1936.

Ókvæntur og barnlaus.

Gísli í heyskap á landi vinar síns með ungum aðstoðarmanni. Mynd WtW

Gísli var samferða Petrínu Jónsdóttur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 en hún var konuefni Stefáns Ólafssonar vinar hans, sem fór vestur þangað árið 1879. Hann bjó hjá þeim í Winnipeg fram yfir aldamót og fór með þeim í Lundarbyggð. Vann við bústörf hjá Stefáni alla tíð.