Valdimar Magnússon

ID: 12343
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1928

Valdimar Magnússon fæddist á Akureyri í Eyjafjarðarsýslu 31. júlí, 1866. Dáinn 11. desember, 1928 í Winnipeg í Kanada.

Maki: Steinunn Stefánsdóttir f. 2. desember, 1873 í Vestmannaeyjum.

Börn: Þau áttu tvo syni og tvær dætur.

Valdimar fór vestur til Manitoba í Kanada árið 1889, Steinnunn fór vestur til Bandaríkjanna 1888. Flutti þangað með móður sinni og bjuggu í Bleufeldville nálægt New York. Þar var fyrir faðir hennar. Fjölskyldan flutti þaðan árið 1890 í Lögbergsbyggðina í Saskatchewan.