ID: 12385
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1941

Guðrún Jónsdóttir Mynd WtW
Guðrún Jónsdóttir fæddist 20. október, 1855 í N. Múlasýslu. Dáin í Manitoba 25. ágúst, 1941.
Maki: 14. júlí, 1876 Jón Jónsson f. 2. nóvember, 1852 í N. Múlasýslu, d. í Manitoba 26. nóvember, 1923. Gjarnan kenndur við Sleðbrjót.
Börn: 1. Björg f. 1877 2. Páll f. 1885 3. Ragnhildur f. 26. apríl, 1887, d. 18. apríl, 1958 4. Guðmundur f. 1891 5. Helga f. 1892 6. Jón f. 1894 7. Ingibjörg f. 25. ágúst, 1896.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1903 og fóru áfram í Lundarbyggð. Þau keyptu land á Rabbit Point árið 1905 og bjuggu þar næstu þrjú árin. Fluttu þaðan í Siglunesbyggð árið 1908.
