Ingibjörg Jónsdóttir

ID: 12391
Fæðingarár : 1896
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1963

Ingibjörg Jónsdóttir Mynd VÍÆ I

Ingibjörg Jónsdóttir fæddist á Sleðbrjót í N. Múlasýslu 25. ágúst, 1896. Dáin í  í mars, 1963

Maki: 28. mars, 1924  Sigurbjörn Eggertsson f. 11. september, 1895 í Fagraskógi í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Vancouver í Bresku Kólumbíu 15. ágúst, 1977.

Börn: 1. Björn f. 24. september, 1928.

Ingibjörg var dóttir Jóns Jónssonar á Sleðbrjót í N. Múlasýslu og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur. Þau fluttu til Vesturheims árið 1903.  Sigurbjörn sleit barnsskónum í Fagraskógi með jafnaldra sínum, Davíð Stefánssyni, sem seinna varð eitt ástsælasta skáld Íslands. Hann flutti vestur um haf árið 1906 með foreldrum sínum, Eggerti Sigurgeirssyni og Svanhildi Sigurbjörnsdóttur. Þau námu land í Siglunesbyggð í Manitoba og þar bjó Sigurbjörn fyrstu árin. Hann gekk í verslunarskóla í Winnipeg og gerðist verslunarmaður í borginni 1915 til 1921. Hann keypti í félagi við Jón Bergman gömul verslunarhús í Vogum í Manitoba og hóf eigin verslunarrekstur. Vann við verslunina alla tíð.