Páll E Jósefsson

ID: 12418
Fæðingarár : 1846
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1922

Páll Einar Jósefsson fæddist 27. apríl, 1846 í N. Múlasýslu. Dáinn 27. mars, 1922 í Minnesota.

Maki: 1) Helga Björg Jóhannesdóttir f. 10. júní, 1848, d. á Íslandi 2) Kristín Ingveldur Bjarnadóttir f. í N. Múlasýslu 1854, d. í Minnesota 26. ágúst, 1891.

Börn: Með Kristínu 1. Jósef 6. júní, 1877 2. Jóhannes f. 15. mars, 1879 3. Björg Birgitta f. 26. október, 1881 4. Solveig f. 1883 5. Júlía f. 2. apríl, 1883 6. Sesselja (Stella) Sigurveig f. 29. apríl, 1889 7. Lára (Laura).

Páll og Kristín fluttu vestur til Minnesota árið 1883 og settust að í Lincoln sýslu.