ID: 12420
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Jósef Einarsson fæddist 6. júí, 1877 í N. Múlasýslu.
Maki: Ida C. Abrahamson f. í Michigan, sænsk að uppruna.
Börn: 1. Mildred Christine f. 13. október, 1906 2. Myrtle f. 1909 3. Irvin J f. 1916 4. Ruby f. 1921 5. Pearl Lillian f. 1925.
Jósef flutti vestur til Minnesota árið 1883 með foreldrum sínum, Páli Einari Jósefsyni og Kristínu Bjarnadóttur og systkinum. Jósef lærði trésmíði og starfaði sem slíkur í Lincoln sýslu en þar var faðir hans skráður hjá honum í manntali árið 1900. Árið 1910 er hann komin með fjölskyldu og er þá skráður í Tracy í Lyon sýslu. Hann vinnur í Aitkin sýslu árið 1920 en 1930 er hann búsettur í McLean sýslu í N. Dakota.
