Eggert Andrésson

ID: 2342
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : Mýrasýsla
Dánarár : 1956

Eggert Andrésson fæddist 15. ágúst, 1871 í Mýrasýslu. Dáinn í Floodwood í Minnesota árið 1956. Edgar Norman vestra.

Maki: Guðbjörg Jóhannesdóttir f. 15. maí, 1862 í Mýrasýslu, d. eftir 1930 í Minnesota.

Börn: 1. Indíana f. 2. maí, 1898 2. Óskar (Oscar) f. 1900 3. Laufey (Lily eða Louise) f. 1904 4. Haraldur (Harold) f. 29. nóvember, 1907, d. 14. maí, 1993 í Minnesota.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1898 og voru skráð íbúar þar í manntali 1901 sem Anderson. Fluttu til Duluth í Minnesota árið 1903 og þar skráð með ættarnafnið Norman í manntali 1910. Eggert var bóndi í Halden hreppi, í St. Louis sýslu skammt vestur af borginni.