Sigbjörn Sigurðsson

ID: 12452
Fæðingarár : 1843
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1909

Sigbjörn Sigurðsson Mynd VÍÆ III

Sigbjörn Sigurðsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1843. Dáinn 8. október, 1909 í Leslie í Vatnabyggð

Maki: Guðrún Hólmfríður Björnsdóttir f. 8. júlí, 1853, d. á Íslandi 11. júlí, 1903.

Börn: 1. Sigbjörn f. 1874 2. Jóhann Kristján f. 1875 3. Ólöf f. 8. nóvember, 1879 4. Sigurður f. 1882 5. Sófónías f. 1889.

Sigbjörn fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1904 með þrjú börn sín, Ólöf hafði farið vestur þangað árið 1902 og Jóhann Kristján 1903. Þar bjuggu þau fáein ár en 1908 fluttu feðgarnir í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu lönd nærri Leslie. Með þeim vestur fór Jóhanna, systir Sigbjörns 54 ára svo og tökubarn, Jóhanna Björnsdóttir.