
Sigbjörn Sigbjörnsson Mynd VÍÆ III
Sigbjörn Sigbjörnsson fæddist í N. Múlasýslu 22. maí, 1874. Dáinn í Manitoba 13. október, 1966.
Maki: 1905 Anna Sigríður Guðmundsdóttir f. 3. desember, 1876, d. 24. apríl, 1951 í Manitoba.
Börn: 1. Guðrún Hólmfríður f. í Winnipeg 7. ágúst, 1906, d. 12. september, 1939 2. Anna Margrét f. í Winnipeg 22. apríl, 1908 3. Sigurbjörg f. 1. maí, 1910 í Saskatchewan 4. Guðmundur f. 25. ágúst, 1913 í Saskatchewan 5. Gyðríður Stefanía f. 17. maí, 1915 6. Soffía Jóhanna Solveig f. 25. maí, 1919. Anna átti Ingvar Hauk Stefánsson 3. júní, 1901 með Stefáni Einarssyni.
Sigbjörn fór vestur árið 1904 með föður sínum og bræðrum. Hann settist að í Winnipeg og bjó þar til ársins 1908, flutti þá vestur í Vatnabyggð og bjó nærri Leslie til ársins 1957. Fór þá til Önnu, dóttur sinnar í Winnipeg. Anna Sigríður flutti vestur með Ingvar Hauk árið 1903, samferða Jónu, systur sinni. Þær fóru til Winnipeg.
