Oddur Eiríksson

ID: 12476
Fæðingarár : 1843
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1929

Oddur Eiríksson og fjölskylda Mynd Well Connected

 Oddur Eiríksson fæddist í N. Múlasýslu árið 1843. Dáinn á Gimli í Manitoba 22. júlí, 1929. Erickson vestra.

Maki: Elín Sigurðardóttir f. 1847 í N. Múlasýslu, d. í Minneota í Minnesota 14. júlí, 1925.

Börn: 1. Þorvaldur f. 1880, d. 1893 úr taugaveiki 2. Elín f. 1881, d. c1881 á Íslandi 3. Sigurður Björgvin f. 28. september, 1885 4. Elín Sesselja Sigríður f. 12. nóvember, 1887 5. Sigfinnur Sigurbjörn f. 15. ágúst 15, 1889, d. 1893 úr taugaveiki 6. Eiríkur Karvel Sigurbjörn f. 15. júlí, 1892.

Þau fluttu vestur til Minnesota árið 1882 og settust að í Minneota.