
Benedikt Björnsson VÍÆ II

Karólína Kristjánsdóttir Mynd VÍÆ II
Benedikt Björnsson fæddist í N. Múlasýslu 4. maí, 1893. Heiðman í Kanada.
Maki: 22. júní, 1916 Karólína Hólmfríður Kristjánsdóttir f. í N. Þingeyjarsýslu.
Börn: 1. Leola f. 14. maí, 1917 2. Elenora Valgerður f. 26. febrúar, 1919 3. Beatrice Jóhanna f. 11. júní, 1921 4. Árnína Emily f. 6. janúar, 1930 5. Esther Björnína f. 17. febrúar, 1932.
Benedikt flutti vestur árið 1903 með foreldrum sínum, Birni Sigurðssyni og Guðrúnu Hallgrímsdóttur. Þau settust að í Argylebyggð. Karólína fór vestur sama ár með foreldrum sínum, Kristjáni Sigurðssyni og Árnínu Þorláksdóttur. Þau settust að í Hólabyggð í Manitoba. Benedikt varð bóndi þar í byggð í 11 ár, gerðist síðan ökumaður í Glenboro ein 19 ár en flutti svo til Winnipeg. Þar hafði hann umsjón með Fyrstu lútersku kirkju íslenska safnaðarins í borginni.
