
Vilborg Einarsdóttir Mynd Well Connected
Vilborg Einarsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1854. Dáin 30. maí, 1920 í Minnesota. Askdal vestra.
Maki: Sigbjörn Kristjánsson f. 25. september, 1837 í N. Múlasýslu, d. í Yellow Medecine sýslu í Minnesota 14. janúar, 1929. Ben Christianson Askdal í Minnesota.
Börn: 1. Emelie f. 1883 2. Arthur f. 1883 (tvíburi?) 3. Jóna Sigríður f. 1. janúar, 1884 4. Nína f. 26. mars, 1884 5. Kristrún Margrét f. 15. febrúar, 1891. Sigbjörn átti börn af fyrra hjónabandi: 1. Metúsalem f. 1862 2. Elín f. 1863 3. Kristján f. 1869.
Sigbjörn og Vilborg fluttu vestur árið 1882 og var Metúsalem þeim samferða. Elín hafði verið tekin í fóstur af Sigfinni Péturssyni á Svínabakka og fór vestur með fjölskyldu hans árið 1878. Kristján fór vestur með sína fjölskyldu árið 1893. Sigbjörn settist að í Swede Prairie í Yellow Medicine sýslu.
