ID: 12517
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1942

Daníel og Guðrún Mynd WtW
Daníel Frímann Daníelsson fæddist í N. Múlasýslu 13. ágúst, 1862. Dáinn í Winnipeg árið 1942.
Maki: 1888 Guðrún Magnúsdóttir f. 27. október, 1865, d. 1933.
Börn: 1. Ólöf Sigurbjörg f. 6. desember, 1886, d. 10. mars, 1965 2. Jónína Þuríður f. 13. júní, 1890, d. 29. júlí, 1970 3. Jóhann f. 1898, d. 1963 4. Guðný f. 10. febrúar, 1906, d. 7. ágúst, 1943.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1894 og fóru til ættingja í Lundarbyggð. Námu land og bjuggu á því í fimm ár en fluttu þá til Oak Point þar sem Daníel stundaði verslunarstörf um hríð. Fór þaðan aftur á land sitt og bjó nokkur ár en flutti síðast til Winnipeg.
