
Sigurlaug með barnahópinn árið 1893. Andrena, Einar, Einar Kristinn og Gísli Jónas standa. Sigurlaug heldur á Ólafi, og Oddur Sigurður situr. Mynd Well Connected
Einar Sigurðsson fæddist í N. Múlasýslu 10. apríl, 1842. Dáinn í Minneota 20. ágúst, 1920.
Maki: Sigurlaug Jónasdóttir f. 20. október, 1853, d. 26. desember, 1934 í Minneota.
Börn: 1. Einar Sigurjón Páll f. 3. ágúst, 1881 2. Jóhanna Arnbjörg f, 12. júní, 1883, d. 1. mars, 1900 3. Andrena (Lena) f. 23. febrúar, 1885 4. Gísli Jónas f. 18. apríl, 1886 5. Ólafur (Oliver) Björgvin f. 1. desember, 1887 6. Einar Kristinn f. 15. janúar, 1890 7. Oddur Sigurður f. 3. apríl, 1892, d. 1892 8. Oddur (Severt Otto) Sigurður f. 24. desember, 1893 9. Marvin Einar f. 21. mars, 1896 10. Björn Aðalsteinn f. 15. október, 1898, d. 14. mars, 1899 11. Björn E. f. 1901.
Þau fluttu vestur til Minnesota árið 1882 og settust að í Lyon sýslu.
