ID: 12527
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1948

Björn Jónsson og Guðrún Guðmundsdóttir Mynd SÁG
Björn Jónsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1872. Dáinn í Manitoba 6. september, 1948. Bjorn Mathews vestra.
Maki: 22.júlí, 1898 Guðrún Guðmundsdóttir Lundal f. í Borgarfjarðarsýslu árið 1877.
Börn: 1. Otto Wathne 2. Sigurður Jón 3. Guðmundur 4. Margrét 5. Aðalbjörg.
Björn flutti vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1887 með foreldrum sínum og systkinum. Þau settust að í Lundarbyggð en fóru þaðan til Narrows og loks á Siglunes. Björn og Guðrún settust að á Birch Island árið 1899 og stunduðufjárrækt og fiskveiðar. Guðrún var dóttir Guðmundar Bjarnasonar í Lundarreykjadal og kom vestur með foreldrum sínum og systkinum árið 1887.
