Hallfríður Guðbrandsdóttir fæddist 17. mars, 1875 í N. Múlasýslu. Dáin árið 1942 í N. Dakota.
Maki: 2. maí, 1896 Kristján Tryggvi Dínusson f. 30. apríl, 1873 í S. Þingeyjarsýslu, d. í Pembina sýslu í N. Dakota 23. júlí, 1945.
Börn: 1. Guðný f. 24. janúar, 1897 2. Guðbrandur f. 26. nóvember, 1898 3. Jónatan f. 1900, d. 1903 4. Sigríður Anna f. 3. febrúar, 1903 5. Kristján Dinus f. 24. nóvember, 1907 6. Þorbjörg Lílja f. 26. mars, 1911 7. Pálína (Pauline) Helga f. 2. febrúar, 1913 8. Kristín (Christine) f. 17. júlí, 1915 9. William Erling f. 28. apríl, 1920.
Hallfríður fór vestur árið 1875 með sínum foreldrum, Guðbrandi Erlendssyni og Sigríði Hávarðsdóttur. Þau settust að í Marklandi í Nova Scotia og bjuggu þar nokkur ár en fluttu svo þaðan til N. Dakota. Kristján fór vestur árið 1879 með foreldrum sínum, Dínusi Jónssyni og Kristjönu Árnadóttur sem settust að í N. Dakota. Kristján og Hallfríður bjuggu í Akrabyggð.
