Jóhann B Benediktsson

ID: 12601
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1919

Jóhann Baldvin Benediktsson var fæddur árið 1850 í N. Múlasýslu. Dáinn í Winnipeg 28. nóvember, 1919. Baldvin Benediktson vestra

Maki: 14. janúar, 1886 Guðný Antoníusdóttir f. 1858 í S. Múlasýslu, d. 2. janúar, 1925.

Börn: 1. Þorvaldur 2. Benedikt 3. Baldvin 4. Halldór 5. Karl 6. Jón. Synirnir, allir fæddir vestra, tóku eftirnafnið Baldwin.

Jóhann Baldvin fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settist að í Víðirnesbyggð í Nýja Íslandi. Þar hét Baldurshagi. Þaðan flutti hann til Winnipeg árið 1881 og tók land í Argylebyggð 1883. Þar bjó hann þar til aldurinn fór að segja til sín. Þá flutti hann til Glenboro og þaðan svo til Winnipeg þar sem hann dó. Guðný fór vestur til Manitoba árið 1879