Sigríður Jónsdóttir

ID: 12606
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Sigríður Jónsdóttir fæddist 24. nóvember, 1864 í N. Múlasýslu. Sarah Johnson vestra.

Hún fór vestur árið 1878 með móður sinni, ekkjunni Katrínu Magnúsdóttur. Pétur bróðir hennar var með þeim og fór fjölskyldan til Minnesota. Árið 1885 er Sigríður skráð í manntal í vist hjá Jónasi Ólafssyni og fjölskyldu hans í Limestone hreppi í Lincoln sýslu.