Helga Erlendsdóttir

ID: 12626
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1893

Helga Erlendsdóttir fæddist 9. júlí, 1852 í S. Múlasýslu. Dáin í Portland í Oregon 8. júlí, 1893.

Maki: 1) Lárus Pálsson 2) Stefán Brynjólfsson f. 1839 í Skagafjarðarsýslu, d. 16. apríl, 1918 í Oregon.

Börn: Með Jóni Jónssyni á Bæ í Lóni 1. Jónína f. 1875 í Marklandi. Með Stefáni 1. Erlina f. 18. júlí, 1883 í Garðar. 2. Sophia andvana í Garðar.

Hún flutti vestur til Kanada með bróður sínum, Guðbrandi og fjölskyldu hans árið 1875. Þar giftist hún Stefáni og fór með honum vestur til Minnesota árið 1881, þaðan til Winnipeg og loks í Garðarbyggð árið 1883. Þau fluttu seinna til Sheridan í Oregon.