Sigurður Sigurðsson

ID: 12719
Fæðingarár : 1846
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Sigurður og Oddný sitja fyrir framan Þorbjörgu og Jónínu. Myndin tekin í Marshall í Minnesota. Einkasafn.

Sigurður G. Sigurðsson fæddist árið 1846 í N. Múlasýslu. S. G. Eastman vestra.

Maki: ) Oddný Jónasdóttir f. 24. mars, 1847 í N. Múlasýslu, d. 26. september, 1897. 2) 18. maí, 1898 Emma Johnson.

Börn: Með Oddnýju 1. Þorbjörg f. 1877 2. Jónína f. 1882.

Sigurður og Oddný fluttu vestur til Minnesota árið 1879 og settust að í Lincoln sýslu. Sigurður flutti vestur að Kyrrhafi fyrir aldamótin og settist að í Ballard í Washingtonríki. Árið 1910 segir manntal hann búa í Blaine.