Sigmundur Björnsson

ID: 12763
Fæðingarár : 1888
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Sigmundur Björnsson fæddist 1. júní, 1888 í N. Múlasýslu.

Hann fór ókvæntur og barnlaus vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1905, samferða Sigþrúði systur sinni og fjölskyldu hennar. Fleiri systkini hans fluttu vestur t.a.m. Jón og Helgi sem bjuggu í Siglunesbyggð við Manitobavatn. Sigmundur flutti árið 1923 til Keewatin í Ontario.