Páll Björnsson

ID: 12881
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1881

Gröf Páls í S. Peters kirkjugarðinum í Houston í Minnesota

Páll Björnsson fæddist í N. Múlasýsla 1. maí, 1853. Dáinn 1881 í Houston í Minnesota.

Maki: 6. október, 1879 Julia K Jorgenson í Caledonia í Minnesota.

Barn: 1. Burns Emanuel f. 1880, d. 1891.

Páll fór vestur um haf árið 1873 í fyrst stórhóp vesturfara frá Íslandi. Hann fór til Milwaukee og dvaldi þar til að byrja með en árið 1874 fór hann hina frægu landkönnunarferð til Alaska með Jóni Ólafssyni og Ólafi Ólafssyni frá Espihóli. Þegar til baka kom fékk Páll inngöngu í læknaskóla í Chicago og lauk þaðan prófi. Hann  flutti til Minnesota og opnaði þar læknastofu.