Þorleifur Pétursson

ID: 12919
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Þorleifur Pétursson fæddist í N. Múlasýslu árið 1867.

Ókvæntur og barnlaus.

Þorleifur fór vestur árið 1883 með móður sinni, Sigríði Þorleifsdóttur, manni hennar, Jóni Sigurðssyni og systkinum. Þau fóru til Winnipeg og þaðan í Brownbyggð. Þar keypti Þorleifur land og bjó á því fáein ár en fór svo þaðan til Winnipeg. Þaðan lá svo leið hans vestur í Churchbridge í Saskatchewan.