Jón Hildibrandsson

ID: 13029
Fæðingarár : 1846
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1924

Jón Hildibrandsson Mynd Brot

Guðlaug Einarsdóttir Mynd Brot

Jón Hildibrandsson fæddist í N. Múlasýslu 30.maí, 1846. Dáinn í Nýja Íslandi 3. desember, 1924.

Maki: 24.desember, 1878, Séra Páll Þorláksson gaf þau saman í Hnausabyggð:  Guðlaug Einarsdóttir f. 14. apríl, 1851 í N.Múlasýslu, d. í Nýja Íslandi 9. ágúst, 1907.

Börn: 1. Einar f. 1876, skírður af séra Páli Þorlákssyni, d. 1. nóvember, 1877 2. Hildibrandur f. í Winnipeg 15. janúar, 1885 3. Einar f. 1889, d. 1907 4. Sigfús f. í Hnausabyggð 20. júlí, 1891.

Jón flutti vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1876. Hann var samferða verðandi eiginkonu og foreldrum hennar, Einari Guðmundssyni og Jarþrúði Guðmundsdóttur. Öll fóru þau áfram í Hnausabyggð í Nýja Íslandi og þar hófu þau búskap, Jón og Guðlaug.  Þau fluttu árið 1880 til Winnipeg og vann Jón þar við trésmíðar o.fl næstu sjö árin. Þau sneru aftur til Nýja Íslands árið 1888 og settust að í Fljótsbyggð þar sem þau bjuggu síðan.

Íslensk arfleifð :