Guðrun Þ Sveinsdóttir

ID: 13033
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1901

Guðrún Þóra Sveinsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1845. Dáin 1901 í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi..

Maki: 1865 Sigfús Pétursson f. 1839 í N.Múlasýslu. Dáinn í Nýja Íslandi árið 1929.

Börn: 1. Guðrún Salína f. 1871 2. Sigurborg f. 1874 3. Guðný Jóhanna f. 1875 4. Hildur Jónína f. 1880 5. Þórunn Halldóra f. 1882 6. Sigfús Franklín f. 1885 7. Bergrós f. 1886 8. Sveinn f. 1886 (tvíburi) 9. Sigríður Oktavía f. 1888 10. uppeldissonur Snorri f. 1890. Hann var sonur Sigvalda Sigurðssonar og Þuríðar Kristjánsdóttur.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1878 og fóru sama ár norður til Nýja Íslands. Bjuggu í Fljótsbyggð en námu seinna land í Víðirbyggð.