Jón Matúsalemsson

ID: 13048
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Jón Matúsalemsson fæddist í N. Múlasýslu 22. mars, 1874. John Oleson vestra.

Maki: Arndís Elenfríður Jónsdóttir f. í Snæfellsnessýslu árið 1877. Elin Oleson vestra.

Börn: 1. Jón (John) 2. Pétur (Peter) 3. Stefán 4. Guðrún 5. Hólmfríður.

Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Metúsalem Ólasyni og Guðrúnu Þorsteinsdóttur árið 1876. Þau settust að í Gimli fyrsta árið  en fóru svo norður að Íslendingafljóti. Árið 1881 fluttu þau þaðan í Akrabyggð í N. Dakota. Hann og Arndís fluttu norður í Lundarbyggð þar sem þau bjuggu fáein ár. Sneru til baka til N. Dakota. Móðir Elínar, Hólmfríður Jósefsdóttir, varð ung ekkja og flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1882. Arndís fór vestur þangað með Pétri Þorsteinssyni og dóttur hans, Guðrúnu árið 1888.