ID: 13154
Fæðingarár : 1844
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1902
Rannveig Þorleifsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 22. nóvember, 1844. Dáin 25. maí, 1902.
Maki: 1874 Benedikt Jónsson f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1845, d. í Bellingham í Washingtonríki 7. nóvember, 1910. Austmann vestra.
Börn: 1. Hildigerður f. 1875 2. Halldór Þorleifur 3. Jón Ólafur 4. Sigríður Jóhanna. Önnur fjögur börn þeirra dóu ung.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Þau námu land í Víðirbyggð og nefndu það Stararskóg. Árið 1881 fluttu þau að Miklabæ í sömu byggð þar sem þau voru til ársins 1888 en þá fóru þau til Selkirk. Eftir allmörg ár þar fluttu þau vestur að Kyrrahafi og settust að í Bellingham í Washington.
