Sesselja Jóhannsdóttir

ID: 13270
Fæðingarár : 1881
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1937

Sesselja Jóhannsdóttir fæddist 10. desember, 1881 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Riverton 18. janúar, 1937.

Maki: 1905 Eyvindur Jónasson f. í Dalasýslu 22.mars, 1858, d. 26. nóvember, 1940 í Riverton. Tók nafni Doll í Vesturheimi.

Börn: 1. Jónas f. 12. apríl, 1906, d. 17. október, 1937 2. Egilsína Guðlaug f. 26. september, 1908, d. 9. nóvember, 1934. Hún var móðir Marjorie sem giftist Ted Arnason, bæjarstjóra á Gimli 3. Elínborg Guðrún f. 5. nóvember, 1910 4. Páll Lindberg f. 9. maí, 1913 5. Jónína Sigríður f. 8. september, 1915, d. 23. maí, 1940 6. Jóhann Kristinn dó á barnsaldri 8. október, 1909. Ólína Steinsdóttir f. 12. ágúst, 1904 í Fljótsbyggð var dóttir Sesselju og Steins Runólfssonar. Ættleidd af Jóni Pálssyni og konu hans Kristínu í Nýja Íslandi.

Sesselja var dóttir Jóhanns Daníelssonar og Kristínar Eldjárnsdóttur. Var tekin í fóstur af Agli Árnasyni, bónda á Bakka í Borgarfirði eystri og flutti með þeim til Vesturheims árið 1904. Eyvindur flutti vestur árið 1881, bjó um skeið í Mikley en flutti árið 1907 á land sitt í Víðir- og Sandhæðabyggð. Bjó þar í 5 ár en flutti þá til Winnipeg þar sem þau bjuggu í tvö ár. Þaðan lá svo leiðin norður á ný árið 1914 og nú til Riverton.