ID: 13310
Fæðingarár : 1877
Dánarár : 1928
Árni Jónsson fæddist árið 1877 í N. Múlasýslu. Dáinn 17. janúar, 1928 í Winnipeg.
Maki: Annie MacDonald frá Ottawa d. árið 1931.
Börn: 1. Olive 2. Alice 3. Ariel 4. Clifford 5. Ralph.
Árni og systkini hans fluttu vestur til Winnipeg með foreldrum sínum, Jóni Árnasyni og Ólafíu Jónsdóttur árið 1886. Að loknu grunn- og miðskólanámi nam Árni lögfræði og starfaði sem lögmaður í borginni alla tíð. Hann tók virkan þátt í ýmsum félögum landa sinna, var hluthafi í Viking Press frá stofnun þess árið 1920 og lögfræðingur félagsins um skeið.
