Sigþrúður Gísladóttir

ID: 13337
Fæðingarár : 1879
Dánarár : 1917

Sigþrúður Gísladóttir Mynd VÍÆ V

Sigþrúður Gísladóttir fæddist 21. apríl, 1879 í N. Múlasýslu. Dáin í Nýja Íslandi 21. janúar, 1917.

Maki: 10. mars, 1902 Sveinbjörn Jónsson f.  í S. Múlasýslu 17. febrúar, 1878. Sveinbjörn J. Eiríksson vestra.

Börn: 1. Guðjón f. 7. desember, 1905, d. 1950 2. Elínborg f. 1. mars, 1907, d. 28. júlí, 1950 3. Guðlaug f. 14. maí, 1909 4. Valgerður f. 13. nóvember, 1910 5. Guðríður Sigurlín f. 1. október, 1912 6. Snjólaug f. 7. júlí, 1914 7. Sigtryggur f. 9. maí, 1916.

Sigþrúður var dóttir Gísla Jónssonar og Vilborgar Ásmundsdóttur landnema í Árnesbyggð í Manitoba. Sveinbjörn var sonur Jóns Eiríkssonar og Petrínu Jónsdóttur. Hann fór til Nova Scotia í Kanada með föður sínum og fjölskyldu hans árið 1879, til Winnipeg árið 1882 og loks Nýja Íslands 1885. Þar nam Jón land og nefndi staðinn Lund. Þar bjó Sveinbjörn alla tíð.