ID: 13649
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1916
Þorfinnur Helgason fæddist 3. ágúst, 1864 í Húnavatnssýslu. Dáinn í Árnesbyggð 21. apríl, 1916.
Maki: Marsibil Stefanía Jónatansdóttir f. 1867 í Húnavatnssýslu, d. 8. janúar, 1955.
Börn: Öll fædd í Nýja Íslandi: 1. Jónatan f. 1. apríl, 1897 2. Helgi Þorfinnur 3. Marsibil 4. Agnes 5. Jóhann 6. Herdís 7. Kristín 8. Guðmundur Ágúst f. 23. janúar, 1912 9. Elísabet 10. Guðný.
Þorfinnur flutti einsamall vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887, bjó þar fyrstu árin en flutti í Árnesbyggð í Nýja Íslandi árið 1895. Marsibil fór vestur með sínum foreldrum sama ár.
