Helga Þórunn Þórðardóttir fæddist 2. desember, 1881 í N. Múlasýslu.
Maki: 1907 Sveinn Einarsson f. í Barðastrandarsýslu 5. desember, 1874, d. í Bellingham 12. maí, 1961. Swain Westford vestra.
Börn: Þau eignuðust 11 börn, 7 drengi og 4 stúlkur 1.Victor 2. Einar 3. Grímur 4. Oscar 5. Fredrick 6. John 7. Sveinn 8. Christine 9. Jakobina Paulina 10. Ellen 11. Lillian.
Sveinn flutti vestur árið 1884 með foreldrum sínum, Einari Magnússyni og Kristínu Jónsdóttur. Þau settust að í Garðarbyggð þar sem Sveinn ólst upp og kvæntist. Hann nam land í Mouse-River byggð og bjó þar til ársins 1935, þá fluttu þau með börn sín vestur að Kyrrahafi og námu land suður af Blaine í Washington. Þar bjuggu þau síðan. Helga flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Þórði Benediktssyni og Maríu Sveinsdóttur landnema í Pembina County í N. Dakota.
