Sigurbjörg Stefánsdóttir

ID: 14082
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1905

Sigurbjörg Stefánsdóttir Mynd VÍÆ 4

Sigurbjörg Stefánsdóttir fæddist í S. Múlasýslu 29. september, 1872. Dáin í Minneota í Minnesota 3. febrúar, 1905.

Maki: 22. maí, 1893 Björn Björnsson f. í N. Þingeyjarsýslu 19.júní, 1870 í N. Þingeyjarsýslu, d. í Winnipeg í Manitoba 13. maí, 1938. Rev. Bjorn Bjornsson vestra

Börn: 1. Emil Þórður f. 16. september, 1894 2. Anna Stefanía f. 20. maí, 1896 3. Agnes f. 25. júlí, 1898 4. Ester f. 27. september, 1900 5. Sigurbjörg María f. 24. janúar, 1905, d. 26. desember, 1908 úr berklum.

Sigurbjörg flutti vestur til Kanada árið 1876 með foreldrum sínum, Stefáni Gunnarssyni og Önnu Sigfúsdóttur. Þau settust að í Nýja Íslandi en fluttu þaðan árið 1881 til Winnipeg. Björn flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með foreldrum sínum, Birni Jónssyni og Þorbjörgu Björnsdóttur. Björn gekk menntaveginn og varð prestur. Hann þjónaði í íslensku byggðinni í Minnesota frá 1894 til ársins 1914 og var prestur í Fyrstu Lútersku kirkjunni í Winnipeg frá 1914 til 1938.