Ingibjörg Þorkelsdóttir fæddist í Bárðardal í S. Þingeyjarsýslu 12. desember, 1839. Dáin 20. júní, 1916.
Maki: 1) Guðmundur Ásmundsson 2) Þorsteinn Guðmundsson f. í N. Múlasýslu 7. júní, 1838. Austdal í Vesturheimi. Dáinn 23. febrúar, 1917.
Börn: Með Guðmundi 1. Jakob Pétur f. 1865 2. Þorvaldur (Thor) f. 1868 3. Sigfinnur (Finnur) f. 1870 4. Launsonur Sigurjón Jónsson f. 1878. Faðir hans var Jón Ívarsson. Sigurjón er skráður Guðmundsson vestra. Synirnir skráðir Goodman í bandarískum heimildum. Með Þorsteini 1. Kristín f. 9. janúar, 1880 2. Guðrún Jakobína (Bena) Sesselja f. 6. febrúar, 1884. Clara Elín dó fárra mánuða 1878
Þorsteinn fór vestur árið 1875 og tók land í Lincolnbyggð í Minnesota árið 1878. Ingibjörg kom vestur það ár með synina Jakob Pétur, Sigfinn og Sigurjón. Þorvaldur fór vestur 1880 með Eyjólfi Björnssyni.
